Category: Frettir


Úthlutun starfslauna til sviðslistafólks

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

7th janúar

Launasjóður sviðslistafólks

307 mánuðir

Launasjóður sviðslistafólks: 307 mánuðir voru til úthlutunar, sótt var um 1841 mánuði.

Alls bárust umsóknir frá 940 frá listamönnum sem tilheyrðu 135 sviðslistahópum og 68 einstaklingumStarfslaun í sviðslistahópum fá 145 sviðslistamenn, 79 konur og 66 karlStarfslaun einstaklinga fá 15 sviðslistamenn 59 mánuði, 10 konur og 5 karlar.

EINSTAKLINGAR

10 mánuðir

Finnur Arnar Arnarson

5 mánuðir

Sólveig Guðmundsdóttir

4 mánuðir

Hjörleifur HjartarsonKolbrún HalldórsdóttirKolfinna NikulásdóttirMagnús JónssonPáll Baldvin BaldvinssonÞóra Karítas Árnadóttir

3 mánuðir

Ásgerður JúníusdóttirMaría Heba ÞorkelsdóttirRebekka A. IngimundardóttirUnnur Elísabet GunnarsdóttirVignir Rafn ValthórssonÞórey Sigþórsdóttir

2 mánuðir

Tinna Grétarsdóttir

SVIÐSLISTAHÓPAR 

Heiti sviðlistahóps – heiti verks: nöfn leikara

24 mánuðir

Animato – Mærþöll ópera: Bjarni Thor Kristinsson, Björk Níelsdóttir, Erla Dóra Vogler, Eva Björg Harðardóttir, Eva Þyri Hilmarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Gunnlaugur Bjarnason, Hildigunnur Halldórsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir 

20 mánuðir

Gaflaraleikhúsið – tengt samstarfssamningum Gaflaraleikhúss við Hafnarfjarðarbæ og Sviðslistasjóð.

19 mánuðir

Menningarfélagið Tær – Alda: Katrín Gunnarsdóttir, Eva Signý Berger, Halla Þórðardóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Florence Lea Barthe, Heba Eir Jónasdóttir Kjeld, Snædís Lilja Ingadóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, … Read More »



Könnun um samfélag sjálfstæðra sviðslista í Evrópu

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

3rd desember

Sjálfstæðu Leikhúsin (SL) eru félagi í samtökum sjálfstæðra sviðslista í Evrópu – EAIPA (European Association of Independent Performing Arts).  EAIPA stendur nú fyrir könnun á stöðu sjálfstætt starfandi listamanna, einstaklinga, hópa og stofnanna innan sviðslista í Evrópu.

Markmið könnunarinnar er að safna gögnum og kortleggja stöðu sjálfstæðra sviðslista í Evrópu, miðla þekkingu og efla samstöðu sjálfstætt starfandi sviðslistafólks.

Könnunin nær bæði til einstaklinga og stofnana og henni ætti að svara:

Einstaklingar: Listamenn / Hönnuðir (þ.e. búninga- eða sviðsmynd) / Tæknimenn / Framleiðendur / Framleiðslustjórar / Dramatúrgar / Sýningarstjórar og aðrir

Félög: sjálfstæð fyrirtæki / hópar / framleiðsluhús / æfingarrými / hátíðir / samtök o.fl.

… Sem starfa sjálfstætt á sviði dans / leiklistar / tónlistarleikhúss / barna- og unglingaleikhúss / sirkus / þverfaglegt listrænt starf í sviðslistum

Við viljum biðja þig um að taka þátt í könnuninni. Það tekur u.þ.b. 15 mínútur að svara könnuninn … Read More »



Umsögn SL um frumvarp til laga um tekjufallsstyrki

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

24th október

Sjálfstæðu leikhúsin fagna því að með þessu frumvarpi birtist skýr vilji til að styðja við einyrkja í listum og menningu í ástandi sem gerir þeim verulega erfitt fyrir. Stjórn SL hefur kynnt sér inntak frumvarpsins og reynt að leggja mat á þann stuðning sem sviðslistafólk mun geta sótt verði ákvæði þess að lögum. Niðurstaða okkar að gera þurfi nokkrar veigamiklar breytingar til að það gagnist einyrkjum og litlum fyrirtækjum í sviðslistageiranum. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að horfa til þess að fyrri úrræði stjórnvalda til að styðja fólk í gegnum þessar þregningar hafa ekki nýst sjálfstætt starfandi listafólki sem skyldi. Fyrir því eru margar ástæður en einfalda svarið liggur í afar flóknu starfsumhverfi listamanna; tekjurnar eru sveiflukenndar, bæði innan ársins og milli ára, margir starfa sem launþegar að hluta og sjálfstæðir rekstraraðilar að hluta, ýmist á eigin kennitölu eða undir … Read More »



Vinnustofudvöl á Leifshús Art Farm í Eyjafirði

Posted by leikhopar1 in Frettir. Slökkt á athugasemdum við Vinnustofudvöl á Leifshús Art Farm í Eyjafirði

27th september

Eigendur Leifshús Art Farm í Eyjafirði eru svo rausnarlegir að bjóða sjálfstætt starfandi sviðslistafólki að nýta aðstöðuna án endurgjalds í vetur og vilja styðja þannig við sköpun og veita farveg fyrir frjóa hugsun. Hér er tækifæri til að dvelja í nýju umhverfi án truflunar í nokkra daga.

Aðstaðan sem í boði er er gisting í fimm tveggja manna herbergjum og tveimur fjögurra manna. Herbergin eru öll með sér snyrtingu og rúmföt og handklæði fylgja. Sameiginlegt eldhús og borðstofa/setustofa auk garðskála (óupphitaður). Sviðslistasalurinn verður ekki tilbúinn fyrren eftir áramót þannig að dvöl fyrir áramót miðast við litla hópa sem eingöngu þurfa fundaraðstöðu . Hægt er að nálgast myndir á heimasíðu Hotel Natur www: hotelnatur.com.

Traust og virðing eru lykilorð þegar kemur að umgengni gesta á staðnum. Með orðum gestgjafa: „Við munum ekki líta á dvalargesti sem hefðbundna hótelgesti heldur vini og samstarfsfólk. … Read More »



Dansverkstæðið

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

24th september

Ertu að leita að æfingarrými?

Á Dansverkstæðinu eru 2 rúmgóðir og bjartir salir. Báðir eru þeir með ágæt hljóðkerfi og annar salurinn er með einföldum ljósumkösturum. Einnig erum við með 26 fm herbergi sem hentar vel til undirbúningsvinnu eða fyrir leikmyndahönnuði. Hér er líka gott skrifstofu- og fundarrými sem leigja má til lengri eða styttri tíma. Myndir af rýmunum má sjá hér. 

Allir sviðslistamenn eru hjartanlega velkomnir til okkar og er tímaleiga á stórum sal fyrir félagsmenn er 2000 kr og árgjaldið er 12.000 kr. Ef að óskað er eftir að leigja einungis í nokkra tíma og ekki ætlunin að gerast félagsmaður þá er tímaleigan 4000 kr. 

Ekki hika við að heyra í okkur á Dansverkstæðinu ef að þið hafið einhverjar spurningar: info@dansverkstaedid.is



Ráðgjöf í umsóknargerð

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

18th september

Í tengslum við umsóknir um styrki til atvinnusviðslistahópa og listamannalaun þá bjóða Sjálfstæðu Leikhúsin félagsmönnum fría ráðgjöf í tengslum við umsóknargerðina.

Ráðgjöfina veita Ólöf Ingólfsdóttir, dansari og danshöfundur og Friðrik Friðriksson, leikari og framkvæmdastjóri SL og Tjarnarbíós. Ráðgjöfin er að hámarki 60 mínútur.

Hægt er að panta tíma hjá Ólöfu með tölvupósti á netfangið olof.ingolfsdottir@gmail.com og Friðriki á netfangið leikhopar@leikhopar.is

Ráðgjöfin er ókeypis fyrir þá félaga í SL sem greitt hafa félagsgöld en annars kostar hún 5.000 kr.

Aðild að Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa (SL) er opin öllum einstaklingum, hópum og hátíðum sem starfa á grunni atvinnumennsku í sviðslistum.

Árgjaldið SL er 15.000 kr.

Hægt er að sækja um félagsaðild HÉR



Gagnlegir punktar fyrir umsóknargerð

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

17th september

Á fræðslufundi SL um umsóknargerð tók Ólöf Ingólfsdóttir saman nokkra gagnlega punkta varðandi umsóknarskrif. Hér neðst má svo finna Excel skjal til að styðja við fjárhagsútreikninga.

Að skrifa umsókn

Umsóknaskrif eru liður í þróunarferli listrænna verkefna. Notið umsóknaskrifin til að kynnast verkefninu betur, skilgreina það og byrja að sjá hvernig það gæti hugsanlega litið út.

Rammi verkefnis

Gerið skýra grein fyrir grundvallaratriðum verkefnisins:Hvað? Form verksins og lengdHver? Höfundar og flytjendurHvernig? Vinnuaðferðir og -ferliHvar? SýningarstaðurHvenær? Tímarammi verkefnis

Kjarni – útfærsla

Hvað heitir verkið? Reynið að gefa skýra hugmynd um verkið í einni setningu. Setningin þarf að vera upplýsandi um verkið og best er ef hún vekur líka áhuga og forvitni þess sem les. Eins er gott að æfa sig að lýsa verkinu í 20 orðum, 50 orðum etc.

Lýsing

Hvers konar upplifun má áhorfandi búast við? Heimur verksins, skali, andrúmsloft, fagurfræði, tækni, nýnæmi. Mood-board getur gefið vísbendingar um … Read More »



Viðmiðunartölur vegna umsókna til sviðlistaráðs 2021

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

17th september

úr sýningunni Ekkert er sorglegra en manneskjan

Hægt er að sækja um í 3 sjóði á næstu vikum en opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki til atvinnusviðslistahópa, listamannalaun og menningarstyrki Reykjavíkurborgar.

Sjálfstæðu leikhúsin hafa lagt til leiðbeinandi tölur við umsóknargerðina og lagt þar til grundvallar lágmarkskjör sem gilda í Þjóðleikhúsinu. Hér má finna helstu viðmiðunartölur:

Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna vegna umsókna til Leiklistarráðs 2021

Athugið að í þessum viðmiðunartölum er gengið út frá því að um heilskvöldssýningu fyrir fullorðna sé að ræða. Við sýningar sem eru minni að umfangi er hægt að nota þennan grunn sem útgangspunkt.

Lögð er áhersla á að miðað sé við listamannalaun sem lágmarksgreiðsla en þau eru fyrir árið 2020 kr. 407.413 og verða uþb kr. 427.784 v 2021 ( mv 5% árlega hækkun skv uppl. frá Rannís).  Listamannalaun eru greidd út sem verktakalaun.

Þegar uppreikna skal launþegalaun er þá … Read More »



Okkar hlutverk – framtíðarsýn sjálfstæðra sviðslista

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

4th september

Stefnumótun sjálfstæðra sviðslista.  Hlutverk, framtíðarsýn og aðgerðir

SL býður sjálfstætt starfandi sviðslistafólki til þátttöku í stefnumótun SL til framtíðar.  Stefnumótunardagurinn fer fram í Tjarnarbíói laugardaginn 12. september.   

Við biðjum alla áhugasama um að skrá sig til þátttöku hér:

https://forms.gle/CYd9nr92YHFA5PBr6

Síðasta stefnumótun var unnin árið 2011 og gilti til ársins 2020 má finna á heimasíðu SL.  Margt hefur áunnist en margt stendur í stað.  Við þurfum að móta nýja framtíðarsýn og áherslur í sameiningu.   

Dr. Þröstur Olaf Sigurjónsson ráðgjafi mun leiða stefnumótunarvinnuna.

Dagskrá fundarins:Hlutverk og framtíðarsýn SL til næstu ára

10:00 Morgunkaffi–    Hvert er hlutverkið í dag og hvað hefur áorkast?–    Umræður um nústöðunaHádegishlé,  súpa og brauð í boði SL

Eftir hádegi: –      Hvað skiptir okkur máli og hvert stefnum við?–    Vinnuhópar og hugmyndavinna fyrir nýtt hlutverk og framtíðarsýn–    Hvað eigum við að heita?

14:30 Fundarlok



Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnu­svið­slista­hópa á árinu 2021

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

1st september

Umsóknarfrestur er til 1. október 2020, kl. 23:59.

Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, gildi, ferli listamanna og tímaáætlun. Að öðru leyti vísast til reglugerðar um styrkveitingar ráðherra nr. 642/2018.

Sótt er um á Mínum á síðum. Einungis er tekið við rafrænum fylgigögnum með umsókn. 

Svör til umsækjenda berast í janúar 2021.

Athugið að umsókn um styrki til starfsemi atvinnusviðslistahópa getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna.Sviðslistasjóður starfar samkvæmt nýjum lögum um sviðslistir 2019 nr. 165.



Fræðslukvöld SL – Umsóknargerð

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

31st ágúst

Mánudagskvöldið 7. September kl. 20:00 – 21:30 mun SL halda fræðslukvöld fyrir sviðslistafólk. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um listamannalaun og í september verður opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnuleikhópa.

Á fræðslukvöldinu verða kynning og umræður um hvernig maður nálgast það viðfangsefni að skrifa umsókn um styrk til listræns verkefnis.

Ólöf Ingólfsdóttir mun flytja kynningu og stýra umræðum en hún starfaði um árabil sem danshöfundur og performer í sviðslistum. Hún hefur setið í fjölda úthlutunar- og valnefnda og átti sæti í leiklistarráði 2017 – 2018 og í úthlutunarnefnd listamannalauna 2013. Hún þekkir umsóknaferli listrænna verkefna frá ýmsum hliðum og mun miðla af reynslu sinni á fræðslufundi Tjarnarbíós.

Við biðjum þátttakendur um að skrá sig til leiks hér –https://forms.gle/uq5GDb6zd2PtjiVR6

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir sem hyggjast sækja um styrki á næstunni.



Ný stjórn SL 2020 – 2021

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

3rd júlí

Ný stjórn SL var kjörin á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 30. júní í Tjarnarbíói. Stjórn skipa nú Orri Huginn Ágústsson formaður stjórnar (Á senunni), Kara Hergils meðstjórnandi (Trigger Warning), Árni Kristjánsson meðstjórnandi (Lakehouse Theatre) og Snædís Ingadóttir (Bíbí og Blaka). Nýjir meðlimir í stjórn eru Pálína Jónsdóttir (Reykjavík Ensemble) og Elfar Logi Hannesson (Komedíuleikhúsið).

Orri Huginn formaður SL flutti skýrslu stjórnar og hana má finna hér – Skýrsla stjórnar SL 2019 – 2020

Aðalfundargerð SL má finna hér – Aðalfundur SL 2020

Ársreikninga SL má finna hér – Ársreikningur SL 2019



Ný stjórn Tjarnarbíós 20 – 21

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

3rd júlí

Ný stjórn Menningarfélagsins Tjarnarbíó var kosin á aðalfundi félagsins mánudaginn 29. júní í Tjarnarbíói. Stjórn MTB skipa nú Guðmundur Felixson (Improv Ísland), Sara Marti Guðmundsdóttir (Smartilab) og Valgerður Rúnarsdóttir (Dansfélagið Lúxus). Aðalbjörg Árnadóttir (16 elskendur) var kosinn varamaður í stjórn.

Ólöf Ingólfsdóttir flutti skýrslu stjórnar vegna liðins starfsárs og má nálgast hana á þessum hlekk – Skýrsla stjórnar MTB 2019 – 2020.

Ársreikninga MTB 2019 má nálgast hér – Ársreikingur MTB 2019

Aðalfundargerð má nálgast hér – Aðalfundur MTB 29. Júní 2020



Norrænir músíkdagar 2021 – opið fyrir umsóknir

Posted by leikhopar1 in Frettir, Uncategorized. No Comments

19th júní

Tónlistarhátíðin Norrænir músíkdagar verður haldin á Íslandi 21.-23. október 2021.

Þetta er ein elsta tónlistarhátíð heims, stofnuð árið 1888 og er haldin árlega til skiptis á Norðurlöndunum. Hátíðin var fyrst haldin í Reykjavík árið 1938 og hefur verið haldin hér á fimm ára fresti síðan. Hátíðin leggur megináherslu á samtímatónlist og teflir ávallt fram því besta á  Norðurlöndunum á hverjum tíma. Á hátíðinni koma árlega fram hljómsveitir og einleikarar sem eru leiðandi í flutningi á samtímatónlist og flutt eru tónverk eftir tónskáld frá öllum Norðurlöndunum. Heimalandið hverju sinni fær tækifæri til að kynna sérstaklega eigin tónskáld og hljóðfærahópa, svo hún stuðlar verulega að útbreiðslu norrænnar og þar með íslenskrar tónlistar. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Tinna Þorsteinsdóttir og framkvæmdastjóri er Valdís Þorkelsdóttir. 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er hægt að nálgast upplýsingar um umsóknarferlið og sækja um hér: http://nmdsubmission.org

Frestur til þess að … Read More »



Aðalfundur Bandalags sjálfstæðra leikhúsa (SL) 2020

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

15th júní

Aðalfundur Bandalags sjálfstæðra leikhúsa (SL) verður haldinn þriðjudaginn 30. júní kl. 19:30Dagskrá aðalfundar1. Skýrsla stjórnar2. Reikningar bandalagsins3. Lagabreytingar-Engar lagabreytingartillögur eru fyrirliggjandi. Samin verða drög að nýjum lögum samhliða stefnumótunarvinnu.4. Kosning stjórnar-Tveir stjórnarmeðlimir víkja úr stjórn. Þetta eru Svanlaug Jóhannsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson (varamaður).-Orri og Eyrún eru skipuð til árs í viðbót.-Árni, Kara og Snædís sækjast eftir endurnýjuðu umboði.5. Ákvörðun félagsgjalds-Árgjald er 15.000 kr.6. Önnur mál*Stefnumótun SL*Ný sviðslistalög & sviðslistaráð*Áhrif Covid*Endurhugsun á Starfslaunasjóði sviðslistahópa



Aðalfundur Menningarfélagsins Tjarnarbíó 2020

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

15th júní

Aðalfundur Meningarfélagsins Tjarnarbíó (MTB) verður haldin mánudaginn 29. júní kl. 19:30 í Tjarnarbíói.

Dagskrá aðalfundara. Skýrsla stjórnar um liðið starfsárb. Endurskoðaðir reikningar félagsins, en reikningsárið er almanaksáriðc. Lagabreytingard. Kosning stjórnare. Starfsáætlun komandi starfsársf. Önnur mál

Ólöf Ingólfsdóttir lætur af sem formaður MTB eftir 2 ára setu. Bergdís Júlía Jóhannsdóttir hættir eftir sem stjórnarmaður eftir 2 ára setu en Sveinn Óskar Ásbjörnsson gefur kost á sér til áframhaldandi setu. Sara Marti Guðmundsdóttir situr áfram eitt ár í stjórn. Óskað er eftir framboðum í stjórn en allir fullgildir félagar í SL geta tekið sæti í stjórn.Barinn verður opinn og líflegar umræður eftir fundinnLög (samþykktir) MTBhttps://drive.google.com/file/d/1Usmi5MOmMwIwJKmHbATkMHix-9bd7NtE/view?usp=drivesdk



Gagnasöfnun Hagstofu Íslands um sviðslistir 2017 – 2019

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

9th júní

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa (SL) hefur safnað gögnum um sviðslistir fyrir Hagstofu Íslands um áratuga skeið og nú er komið að því að safna tölum vegna leikáranna 2017 – 2019. Með því að smella á þennan hlekk má hlaða niður Excel skjali til útfyllingar vegna söfnunar á áhorfenda- og sýningafjölda fyrir leikárin 2017 – 2018 og 2018 – 2019.  Leikárið reiknast frá 1. júlí – 30. júní.   Vinsamlegast fyllið út í excel skjalið og sendið á leikhopar@leikhopar.is  . Mikilvægt er að hlaða skjalinu niður og vinna með það þannig. Vistið skjalið með nafni leikhóps nafnleikhops_ahorfendatolur_2017_2019.xlsx  Ef það vakna spurningar varðandi framkvæmd þá endilega sendið fyrirspurnir á Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóra SL á netfangið leikhopar@leikhopar.is eða hringið í síma 699-0770. Gögnin eru eingöngu aðgengileg því starfsfólki Hagstofu Íslands sem vinnur með þau en samandregnar niðurstöður eru birtar á vef Hagstofunnar. Farið er með öll gögn sem trúnaðarmál og birtingu efnisins þannig hagað … Read More »



Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna vegna umsókna til Leiklistarráðs 2020 vegna verkefna á árinu 2020 eða síðar

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

27th apríl

Athugið að í þessum viðmiðunartölum er gengið út frá því að um heilskvöldssýningu fyrir fullorðna sé að ræða. Við sýningar sem eru minni að umgangi er hægt að nota þennan grunn sem útgangspunkt.

Lögð er áhersla á að miðað sé við listamannalaun sem algjöra lágmarksgreiðslu en þau voru 407.413 kr á mán. í verktakagreiðslu. ( jan 2020).

Í umsóknum til leiklistarráðs er alltaf miðað við verktakagreiðslur og við útreikning á verktakaálagi þá er 35% álagi bætt við launþegalaun.

Ef laun eru lægri en listamannalaun verður að fylgja með útskýring eða skriflegir samningar við listamenn til staðfestingar á að viðkomandi samþykki lægri laun.

Einnig er mikilvægt að fjöldi þeirra mánaða sem sótt er um stemmi við þann tíma sem gert er ráð fyrir í verkáætlun.  Ef listamaur vinnur fullan vinnudag í 8 vikur á hann að fá greidd 2 mánaða laun.  Ef vinnutíminn er styttri … Read More »



Til bjargar listinni: ákall til stjórnvalda

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

7th apríl

Þetta ákall var upprunalega ritað af alþjóðlegu
sviðslistasamtökunum IETM og undirritað af Circostrada, ETC, IN SITU og EDN.

Síðan kórónufaraldurinn braust út hefur gríðarstór
hluti jarðarbúa – fólk af ýmsum uppruna, á öllum aldri og af öllum stigum
samfélagsins – þurft að horfast í augu við skyndilega og ótímabundna frestun á
sínu daglega lífi. Fundir fólks í raunheimi eru sjaldgæfir og þurfa að lúta
ýmsum takmörkunum. Sumir standa frammi fyrir óvæntum fjárhagsvandræðum og aðrir
kljást við líkamleg og andleg veikindi. Allt þetta aukna álag í samfloti við
nagandi óvissu um framtíðina, skapar gríðarlega spennu og mun setja varanlegt
mark á allt samfélagið.

Eins og oft á umbrotatímum, snýr fólk sér að
menningunni: bókmenntir, tónlist, kvikmyndir, ljósmyndun, sýndarlistasöfn, dans
og leikhús hafa flutt yfir á netið eða út undir bert loft, þar sem
fjarlægðartakmarkanir eru virtar. Listin sýnir statt og stöðugt hversu
einstakan mátt hún hefur til þess að sameina fólk, jafnvel á tímum þar … Read More »



Rannsókn á afleiðingum COVID 19 á sviðslistir

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

27th mars

Fyrir hönd Sjálfstæðu Leikhúsana (SL), Sviðslistasambands Íslands (SSÍ) og fagfélaga inann sviðslista viljum við safna saman upplýsingum til að meta stöðu sjálfstæðra sviðslista í kjölfar samkomubanns og kórónavírussins.

Upplýsingarnar munum við nota til að veita yfirsýn yfir ástandið til skemmri og lengri tíma sem og til að móta viðbrögð eða hugmyndir að stuðningi við sjálfstæða listamenn, hópa og stofnanir.

Upplýsingarnar munum við meðhöndla í trúnaði og munum ekki birta einstakar upplýsingar varðandi fjárhag og samninga. Kjósir þú að vera nafnlaus munum við ekki birta þína sögu. En ef þú gefur leyfi munum við mögulega nýta frásögn þína eða hluta hennar sem raundæmi.
Annars munum við aðeins nýta upplýsingarnar í samandreginni tölfræði.

Spurningum er annarsvegar beint til hópa og stofnana og hinsvegar til einstaklinga. Hægt er að framkvæma könnunina tvisvar þ.e. annarsvegar fyrir hóp og hinsvegar sem einstaklingur.

Ekki er nauðsynlegt að svara … Read More »



Sjálfstæðar sviðslistir á tímum samkomubanns

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

19th mars

Salur Tjarnarbíós – Mynd: Geiri X

Þegar ljóst var að sett yrði á samkomubann var sett af stað vinna um allt samfélagið til að meta áhrif þess og nauðsynleg viðbrögð við því. SL hefur unnið að því að hugsað verði sérstaklega um sjálfstætt starfandi sviðslistafólk í þessu samhengi.Ákvörðun stjórnvalda um samkomubann hefur augljóslega gríðarleg áhrif á starfsgrundvöll alls sjálfstætt starfandi sviðslistafólks.  Á svipstundu hefur fótunum verið kippt undan okkur, leikhúsin neyðst til að loka dyrum sínum svo leiksvið og áhorfendabekkir standa auðir. Þeir listamenn sem starfa við veislustjórnun eða annað tengt veisluhöldum og viðburðastjórn verða af öllum tekjum af slíku. Að auki fellur mikil kennsla niður og námskeiðahald sömuleiðis.  Þá er ótalinn sá hópur sem starfar utansviðs tengt sýningarhaldi s.s ljóshönnuðir, tæknifólk, leikmynda- og búningahönnuðir, starfsfólk í miðsölu og fleiri.

Gróf samantekt SL sýnir að niður falla að lágmarki 20 sviðsverk sjálfstæðra … Read More »



Opið kall fyrir Vorblót 2020

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

4th febrúar

(Photo credit: Photo is from Steinunn Ketilsdóttir’s work, Piece no. 1,5, which was shown during Vorblót 2019)

Tjarnarbíó í samvinnu við Reykjavík Dance Festival heldur þriðju útgáfuna af sviðslistahátíðinni Vorblót dagana 2. Apríl – 5. Apríl.  

Við leitum að tilbúnum verkum til að sýna á hátíðinni.  Verkin mega hafa breiða skírskotun í samtímadans eða verk unnin af danshöfundum eða dönsurum.

Tjarnarbíó og Dansverkstæðið munu bjóða upp á æfingarými vikuna fyrir hátíðina eftir því sem aðstæður leyfa.  Tjarnarbíó er “black box” leikhús og stærð á sviðsgólfi er uþb 9 m. á breidd x 11 m. á dýpt. Leikhúsið er vel búið ljósum og hljóðbúnaði en samt sem áður leitum við eftir einfaldri umgjörð þar sem tími til skiptinga er naumur.  Verk sem gerast annarsstaðar þ.e. Site-Specific koma einnig til greina.

Gert er ráð fyrir að velja 3 – 5 verk til sýninga.

Hátíðin greiðir ekki … Read More »



Úthlutun til atvinnuleikhópa

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

24th janúar

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu leiklistarráðs um styrki til atvinnuleikhópa fyrir árið 2020. Alls bárust 105 umsóknir frá 97 atvinnuleikhópum og sótt var um ríflega 625 milljónir króna. Leikhópurinn 10 fingur fær hæsta styrkinn í ár kr. 10.815 milljónir. Árangurshlutfall umsækjenda er um 19 prósent.

Ákveðið hefur verið að veita 93.999 milljónum króna til 20 verkefna sem skiptast þannig: tíu leikverk, ein barnasýning, ein sirkussýning, fjögur dansverk, þar af eitt dansverk fyrir börn, og fjórar óperur, þar af ein barnaópera.

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá atvinnuleikhópa sem hlutu styrk.

Leikhópurinn 10 fingur fær rúmlega 10,8 milljónir króna fyrir barnasýninguna Stúlkan sem lét snjóaÓperuleikfélagið Alþýðuóperan fær rúmlega 3,2 milljónir fyrir óperuna Corpo SurealDáið er allt án drauma minna fær rúmlega 5,3 milljónir fyrir óperuna Drottinn blessi heimiliðDanfélagið Lúxus fær rúmlega 3,1 milljón fyrir dansverkið Derringurfélagssamtökin EP fá rúmlega 6,6 milljónir … Read More »



Sjálfstæða senan situr eftir

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

22nd janúar

Grein um stöðu sjálfstæðra sviðslista eftir Söru Marti Guðmundsdóttur og Klöru Helgadóttur meistarnema í Menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst sem birtist í Morgunblaðinu 21. janúar 2020

Samkvæmt hagtölum úr Nordic Statistic database eru Íslendingar duglegastir allra Norðurlandaþjóða að sækja leikhús. Til að mynda sótti metfjöldi Þjóðleikhúsið leikárið 2018 til 2019 eða um 118 þúsund manns. Því er ekki að undra hversu mikil gróska er í sviðslistum hérlendis. Þrátt fyrir þennan metfjölda áhorfenda í leikhúsum á Íslandi væri ekki hægt að halda uppi stofnanaleikhúsunum með miðasölunni einni saman – og því síður sjálfstæðri leikhópastarfsemi atvinnuleikara nema með styrkjum frá ríki og borg.Sviðsverk á Íslandi eru framleidd annars vegar af opinberum stofnunum og hins vegar af sjálfstæðum atvinnuleikhópum. Þegar talað er um sjálfstæða leikhópa er hér ekki átt við áhugamannaleikhópa heldur hópa sem samanstanda af atvinnufólki, menntuðu sviðslistafólki. Opinberu sviðslistastofnanirnar eru á fjárlögum … Read More »



LEIKÁRIÐ 2020-2021 Í TJARNARBÍÓ

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

12th janúar

OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR LEIKÁRIÐ 2020-2021 – SAMSTARFSVERKEFNI OG VINNUSTOFUR

Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. Öll sviðsverk koma til greina. Þau verk sem verða fyrir valinu mynda saman leikárið 20/21 í Tjarnarbíói og fá þar af leiðandi aðgang að ókeypis æfingaaðstöðu, stuðningi í markaðs- og tæknimálum, faglegri ráðgjöf ásamt hlutdeild í miðasölu viðkomandi sýningar.

Einnig auglýsir Tjarnarbíó eftir listafólki eða hópum sem hefur áhuga á að vera með vinnustofur (e. Residency) í Tjarnarbíói. Þau fá afnot af rými í húsinu til að vinna í, aðgang að sviðinu þegar það er laust, og skrifstofuaðstöðu með öðrum. Starfsfólk Tjarnarbíós býður fram faglega ráðgjöf og stuðning. Umsókn um vinnustofur skal innihalda stutta lýsingu á því verkefni sem áætlað er að unnið verði ásamt ferilskrá umsækjenda.

Umsóknin skal innihalda stutta greinagerð um verkefnið, lista yfir þátttakendur, fjárhagsáætlun og ferilskrá umsækjenda. Umsóknin og allt efni … Read More »



Aðalfundargerð MTB 18. nóv 2019

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

19th nóvember

Aðalfundur Menningarfélagsins Tjarnarbíó (MTB) var haldinn mánudaginn 18. nóvember s.l. í Tjarnarbíó.  Hér má nálgast aðalfundargerð, skýrsla stjórnar,  ársreikninga félagsins 2018 og lög félagsins með breytingum.  Stjórn MTB skipa nú,  Ólöf Ingólfsdóttir formaður,  Bergdís Júlía Jóhannsdóttir,  Sara Martí Guðmundsdóttir og Sveinn Óskar Ásbjörnsson ásamt Orra Huginn Ágústssyni formanni SL sem áheyrnarfulltrúi.

Aðalfundur MTB 18-11-2019 + Undirskriftir

Skýrsla stjórnar MTB 2018 – 2019

Ársreikningar MTB 2018

LÖG-MTB-4.-nóv-2019



Málþing Leikfélags Reykjavíkur um Jóhann Sigurjónsson (1880 – 1919)

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

9th október

Leikfélag Reykjavíkur efnir til málþings í Borgarleikhúsinu laugardaginn 12. október  í tilefni af 100 ára dánardægri hans og hefst það kl. 11:00 á Litla sviðinu.

Jóhann var eitt okkar fyrstu „alvöru“ leikskálda. Hann skrifaði reyndar á dönsku en engu að síður hafa leikrit hans lifað á íslensku leiksviði til þessa dags: Fjalla-Eyvindur og Galdra-Loftur. Önnur leikrit hans, Skugginn, Bóndinn á Hrauni, Lyga-Mörður og  Rung læknir komust ekki á jafn mikið flug. Leikfélag Reykjavíkur hefur sviðsett Galdra-Loft (Óskina) fimm sinnum og munu leikarar félagsins leiklesa verkið í lok málþingsins. Magnús Þór Þorbergsson, leiklistarfræðingur, mun flytja aðalerindið um Jóhann og verk hans sem hann nefnir Útilegumenn og búðarlokur. Einnig mun  Sveinn Einarsson, leikstjóri, kynna nýja bók sína um Jóhann sem ber titilinn Úti regnið grætur og segja frá niðurstöðum rannsókna sinna á lífi og skáldskap Jóhanns.  Pallborðsumræður ungs sviðslistafólks verða að erindum … Read More »



Morgunspjall SL – Haustið 2019

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

19th september

SL býður félagsmönnum aftur upp á morgunverðarspjallið á nýju leikári.  Næsta spjall verður miðvikudagsmorguninn 2. október á Tjarnarbarnum í Tjarnarbíó.  Kaffi, brauðmeti og morgunverðarleikheit á boðstólnum.  Gestarfyrirlesari í hvert skipti.  Allt sjálfstætt starfandi sviðslistafólk velkomið!



VIÐMIÐUNARTÖLUR LAUNA- OG VERKGREIÐSLNA 2019

Posted by leikhopar1 in Frettir. No Comments

16th september

Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna vegna umsókna til Leiklistarráðs 2019 vegna verkefna á árinu 2020 eða síðar

Athugið að í þessum viðmiðunartölum er gengið út frá því að um heilskvöldssýningu fyrir fullorðna sé að ræða. Við sýningar sem eru minni að umgangi er hægt að nota þennan grunn sem útgangspunkt.

Lögð er áhersla á að miðað sé við listamannalaun sem lágmarksgreiðsla en þau voru 392.498 kr á mán. í verktakagreiðslu. ( jan 2019) en meðaltalshækkun á milli ára hefur verið um 5% og má því reikna með að listamannalaun verði um 412.000 kr í janúar 2020.

Í umsóknum til leiklistarráðs er alltaf miðað við verktakagreiðslur og við útreikning á verktakaálagi þá er 35% álagi bætt við launþegalaun.

Ef laun eru lægri en listamannalaun verður að fylgja með útskýring eða skriflegir samningar við listamenn til staðfestingar á að viðkomandi samþykki lægri laun.

Einnig er mikilvægt að fjöldi … Read More »






Fréttir

Fréttir og tilkynningar úr starfi sjálfstæðra sviðslistahópa. Sendið okkur póst á leikhopar@leikhopar.is

Launatölur vegna umsókna í Sviðslistasjóð og listamannalaun 2024

Nokkuð er um spurningar þegar kemur að launatölum í umsóknum. Áhersla skal lögð á sanngjarna þóknun miðað við vinnuframlag og SL hefur lagt áherslu...

Listafólk í fókus – Taktu þátt

Ný netfundaröð EAPIA „Listafólk í fókus“ hefst fimmtudaginn 9. nóvember.

EAIPA – Evrópusamtök sjálfstæðs sviðslistafólks efnir til spennandi dagskrár og beinir sjónum sínum að listafólki, aðbúnaði þess og aðstöðu með...

Umsögn SL um fjárlög 2024

Hér að neðan er birt umsögn SL um fjárlög 2024, en einnig er hægt að nálgast umsögnina á vef Alþingis hér.

Sjálfstæðu leikhúsin óska eftir:

●...