Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna vegna umsókna til sviðslistasjóðs 2023
ATH. þessi færsla hefur verið uppfærð með gildandi launatölum. Einnig skal athuga að hér eru ekki tæmandi launatölur fyrir ljósa- eða hljóðhönnun, enn sem komið er.
Þessar viðmiðunartölur byggja á launatölum úr kjarasamningum viðeigandi stéttarfélaga. Athugið að í þessum viðmiðunartölum er gengið út frá því að kvöldsýningu fyrir fullorðna sé að ræða. Við sýningar sem eru minni að umfangi er hægt að nota þennan grunn sem útgangspunkt við útreikninga.
Lögð er áhersla á að miðað sé við listamannalaun sem algera lágmarksgreiðslu og athugið að listamannalaun eru skilgreind skv. reglugerð sem 67% hlutfall af fullri vinnu, en þau eru fyrir árið 2023 kr. 507.500,- Ekki liggur fyrir staðfest upphæð á listamannalaunum 2024, en umsóknarformið reiknar sjálfkrafa upphæð listamannalauna. Umsækjendur þurfa að færa inn launatölur fyrir mánaðarlaun þátttakenda.
Verktakaálag
Verktakaálag er hugsað til að standa skil á öllum gjöldum sem vinnuveitandi skal greiða s.s. greiðslur til stéttarfélaga, þar undir falla sjúkrasjóður, orlofssjóður og endurmenntunarsjóður; opinber gjöld, þ.e. almennt tryggingagjald og atvinnutryggingagjald, markaðsgjald og gjald í ábyrgðarsjóð launa; mótframlag í lífeyrissjóð launþega (auk framlags í endurhæfingarsjóði), þá býðst launþega að greiða í séreignarsparnað lífeyrissjóða og er launagreiðanda skylt að borga mótframlag; hugsanlega slysa- og sjúkratryggingar; orlof o.þ.h.
Við útreikning á verktakaálagi þá leggur FÍL það upp sem amk. 35% álag, en FLÍ hefur bent á að reikna skuli amk 40% álag, sem dekkar þá öll lögbundin launatengd gjöld og þau sem kjarasamningur kveður á um.
Upphæð listamannalauna sem birt er hér að ofan, uppreiknuð m.v. 100% starf að viðbættu 35% álagi er kr. 1.022.575,-
Ef laun í umsókn eru lægri en listamannalaun verður að fylgja með rökstudd útskýring eða skriflegir samningar við listamenn til staðfestingar.
Vegna aðkeyptrar þjónustu og vinnu annarra en listafólks er mikilvægt að reiknað sé með markaðslaunum eins og þau eru á hverjum tíma.
Leikarar, söngvarar og dansarar 2023
Fyrir vinnuframlag þessara listamanna skal miða við að lágmarki listamannalaun, en taka tillit til vinnuframlags.
Byrjunarlaun leikara/dansara á mánuði við Þjóðleikhúsið voru frá og með 1. apríl 2023 kr. 599.259 eða kr. 809.000 með 35% verktakaálagi. Til viðbótar mánaðarkaupi er leikara greitt fyrir hverja sýningu kr. 12.000 eða kr. 16.200 með 35% verktakaálagi.
Leikari er ráðinn skv. kjarasamningi í það minnsta í 4 mánuði. Lágmarkslaun eru skv. því: kr. 2.397.036 launþegalaun / kr. 3.235.999 með 35% verktakaálagi.
Ætti þetta að vera útgangspunktur þar sem það eru þau laun sem samningsaðilar leikara hafa komið sér saman um í kjarasamningi að séu lágmarkslaun leikara. Hægt er að reikna hlutfall af heildarlaunum ef æfingatímabil er styttra en 2 mánuðir (8 vikur).
Sýningarlaun pr. sýn. eru að lágmarki kr. 32.000 (tala frá 2014) fyrir sýningu í fullri lengd, uppreiknuð til 2023 eru það kr. 47.827,- Mögulega mætti hugsa sér að eðlileg sýningalaun væru þreföld upphæðin að ofan (16.200): kr. 48.600 eða fjórföld: kr. 64.800 ef engin mánaðarlaun eru greidd samhliða.
Leikstjórar 2023
Launatafla FLÍ – Félags leikstjóra á Íslandi, byggð á gildandi samkomulagi FLÍ við Þjóðleikhúsið og ríkissjóð frá 14. apríl 2023:
1. þrep kr. 674.881.- / 944.833,- með 40% verktakaálagi.
2. þrep kr. 695.127.- / 973.178,- með 40% verktakaálagi.
3. þrep kr. 715.981.- / 1.002.373,- með 40% verktakaálagi.
4. þrep kr. 737.461.- / 1.032.445,- með 40% verktakaálagi.
5. þrep kr. 759.585.- / 1.063.419,- með 40% verktakaálagi.
6. þrep kr. 782.372.- / 1.095.321,- með 40% verktakaálagi.
7. þrep kr. 805.843.- / 1.128.180,- með 40% verktakaálagi.
8. þrep kr. 830.019.- / 1.162.027,- með 40% verktakaálagi.
Flokkar og lengd svidssetninga ákvarða þar mánaðafjölda launa sem hér segir:
Sviðssetning 1 – Sérstaklega vandasöm sýning fyrir stórt svið, með fjölda þátttakenda og flóknum sviðsútfærslum skal nema aðlágmarki fimm mánaðarlaunum. Ný íslensk leikverk og samsköpunarverk í fullri lengd skulu falla í þann flokk.
Sviðssetning 2 – Venjuleg kvoldssýning, lengri en 60 mínútur og barnasýningar, lengri en 60 mínútur skal nema að lágmarki fernum mánaðarlaunum.
Sviðssetning 3 – Styttri sýning, 70 mínútur eða skemmri og barnasýningar, 60 mínútur eða skemmri skal nema að lágmarki þrennum mánaðarlaunum.
Upplýsingarnar eru úr samningi FLÍ og Þjóðleikhússins, skv. kjarasamningi FLÍ og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og gilda tölurnar frá og með 1. apríl 2023
Leikmynda og búningahöfundar 2023
Ef einn aðili er ráðinn til að sinna hvoru tveggja eru lágmarkslaun: kr. 3.287.089 launþegalaun / kr. 4.437.570 með 35% verktakaálagi.
Ef tveir aðilar eru ráðnir þ.e. leikmyndahöf. og búningahöf. Eru launin fyrir hvorn aðila launþega kr. 2.528.530/ kr.3.413.516 með 35% verktakaálagi.
Greiðsla fyrir hverja sýningu umfram 8 er kr. 10.620 fyrir launþega, 14.337 með 35% verktakaálagi.
Tölurnar eru úr samningum FÍL og fjármálaráðherra v. Þjóðleikhússins og gilda frá og með 1. apríl 2023
Danshöfundar í leikverkum 2023
Lágmarkslaun: kr. 2.528.530/ kr.3.413.516 með 35% verktakaálagi.
Greiðsla fyrir hverja sýningu umfram 8 er kr. 8.943 fyrir launþega, 12.074 með 35% verktakaálagi.
Tölurnar eru úr samningum FÍL og fjármálaráðherra v. Þjóðleikhússins og gilda frá og með 1. apríl 2023
Tæknifólk 2023
Kaupskrá Rafiðnaðarsambands Íslands frá 30. mars ’23 tilgreinir byrjunarlaun „tæknimanns 1“ skv. almennum taxta kr. 452.810,- / 633.934,- með 40% verktakaálagi. Athugið að þetta eru lágmarkslaun pr. mánuð í dagvinnu fyrir byrjanda í starfi með einhverja menntun eða sérhæfingu.
„Tæknimaður 2“ er starfsmaður með sérhæfingu, reynslu og sjálfstæð vinnubrögð og eru byrjunarlaun hans 482.630,- / 675.682,-með 40% verktakaálagi.
„Tæknimaður 3“ ber ábyrgð að auki, þessi flokkur ætti t.a.m. við um ljósahönnuð o.fl. og eru byrjunarlaun hans 536.256 ,- / 750.759- með 40% verktakaálagi
Fyrir starfsmann sem kemur inn á æfingatímabili til að sinna tækniaðstoð/keyrslu er hægt að reikna hlutfall af heildarlaunum.
Sýningarlaun tæknifólks
Gjarnan hefur verið miðað við kr. 35.000,- sem lágmarks sýningarlaun ef engin mánaðarlaun eru greidd samhliða. Eðlileg sýningarlaun fyrir keyrslu á sýningum gætu verið á bilinu kr. 25.000-45.000,- eftir reynslu starfsmanns og umfangi sýningar. Athugið að gera ráð fyrir þóknun í samræmi við verksvið og viðveru, ss. uppsetningu og niðurrifi á sviði o.þ.h.
Skildu eftir svar