Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna frá Félagi Íslenskra Leikara
Viðmiðunartölur launa- og verkgreiðslna vegna umsókna
Til Sviðslistasjóðs 2021
Athugið að í þessum viðmiðunartölum er gengið út frá því að um heilskvöldssýningu fyrir fullorðna sé að ræða. Við sýningar sem eru minni að umfangi er hægt að nota þennan grunn sem útgangspunkt.
Lögð er áhersla á að miðað sé við listamannalaun sem lágmarksgreiðsla en þau eru fyrir árið 2021 kr. 409.508
Við útreikning á verktakaálagi þá er það að lágmarki +35%. Verktakaálag er lagt ofan á launþegalaun þar sem verktaki þarf að standa skil á öllum greiðslum sem annars vinnuveitandi myndi greiða m.a. mótframlag í lífeyrissjóð, mótframlag í stéttarfélag, tryggingargjald, slysa og sjúkratryggingar og orlof.
Ef laun eru lægri en listamannalaun verður að fylgja með útskýring eða skriflegir samningar við listamenn til staðfestingar á að viðkomandi samþykki lægri laun.
Varðandi vinnu annara en listamanna er mikilvægt að reiknað sé með markaðslaunum eins og þau eru á hverjum tíma. T.d. kostar smiður að lágmarki 7000.- kr. á tímann en EKKI 1500.- kr.
Leikarar, söngvarar og listdansarar 2021
Fyrir vinnu framlag þessara listamanna skal miða við að lágmarki listamannalaun. Byrjunarlaun leikara á mánuði við atvinnuleikhúsin (Þjóðleikhúsið) frá og með 1. Janúar 2021 kr. 533.153 (kr. 719.757 ) Launatala verktaka innan sviga m 35% verktakaálagi)
Til viðbótar mánaðarkaupi er greitt fyrir hverja sýningu kr. 9.100 ( 12.285)
Leikari er ráðinn í það minnsta í 4 mánuði.
Ætti það að vera útgangspunktur þar sem það eru laun sem samningsaðilar leikara hafa komið sér saman um í kjarasamningi að séu lágmarkslaun fyrir leikara. Hægt er að finna út hlutfall af heildarlaunum ef æfingatímabil er styttra en 2 mánuðir (8 vikur.)
Sýningarlaun pr. sýn. er að lágmarki kr. 32.000 ( tala frá 2014 skv. verðlagsreiknivél væri 39.000 í dag) fyrir sýningu í fullri lengd. Mögulega mætti hugsa sér að sýningalaun væru þreföld kr. 36.855 eða fjórföld kr. 49.140 ef engin mánaðarlaun eru greidd samhliða.
Leikmynda og búningahöfundar 2021
Lágmarkslaun: kr. 2.824.839 launþegalaun / kr. 3.818.932 í verktakalaun
Ef tveir aðilar eru ráðnir þ.e. leikmyndahöf. og búningahöf. Eru launin fyrir hvorn aðila launþega kr. 2.176.030/ kr.2.937.641 fyrir verktaka
Tölurnar eru úr samningum FÍL og fjármálaráðherra v. Þjóðleikhússins og gilda frá og með 1. Janúar 2021
Skildu eftir svar