LEIKÁRIÐ 2020-2021 Í TJARNARBÍÓ


Posted on janúar 12th, by leikhopar1 in Frettir. No Comments

0 Flares Filament.io 0 Flares ×

OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR LEIKÁRIÐ 2020-2021 – SAMSTARFSVERKEFNI OG VINNUSTOFUR

Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. Öll sviðsverk koma til greina. Þau verk sem verða fyrir valinu mynda saman leikárið 20/21 í Tjarnarbíói og fá þar af leiðandi aðgang að ókeypis æfingaaðstöðu, stuðningi í markaðs- og tæknimálum, faglegri ráðgjöf ásamt hlutdeild í miðasölu viðkomandi sýningar.

Einnig auglýsir Tjarnarbíó eftir listafólki eða hópum sem hefur áhuga á að vera með vinnustofur (e. Residency) í Tjarnarbíói. Þau fá afnot af rými í húsinu til að vinna í, aðgang að sviðinu þegar það er laust, og skrifstofuaðstöðu með öðrum. Starfsfólk Tjarnarbíós býður fram faglega ráðgjöf og stuðning. Umsókn um vinnustofur skal innihalda stutta lýsingu á því verkefni sem áætlað er að unnið verði ásamt ferilskrá umsækjenda.

Umsóknin skal innihalda stutta greinagerð um verkefnið, lista yfir þátttakendur, fjárhagsáætlun og ferilskrá umsækjenda. Umsóknin og allt efni sem þeim viðkemur skal safna í eina pdf-skrá merkta umsokn_2020_[nafn verkefnis] og senda á umsokn@tjarnarbio.is. Umsóknir sem ekki fara eftir umbeðnum kröfum eða í vantar gögn verða ekki teknar til greina.

Stjórn Menningarfélags Tjarnarbíós velur úr umsóknum í samráði við framkvæmdastjóra samkvæmt valferlisreglum. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 14. febrúar næstkomandi og umsóknum verður svarað ekki síðar en mánuði síðar. Upplýsingar um valferlið má kynna sér á https://tjarnarbio.is/starfid/#val

Praktískar upplýsingar:
Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á umsokn@tjarnarbio.is
Umsóknir berist fyrir miðnætti þann 14. febrúar 2020





Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.



Fréttir

Fréttir og tilkynningar úr starfi sjálfstæðra sviðslistahópa. Sendið okkur póst á leikhopar@leikhopar.is

Listafólk í fókus – Taktu þátt

Ný netfundaröð EAPIA „Listafólk í fókus“ hefst fimmtudaginn 9. nóvember.

EAIPA – Evrópusamtök sjálfstæðs sviðslistafólks efnir til spennandi dagskrár og beinir sjónum sínum að listafólki, aðbúnaði þess og aðstöðu með...

Umsögn SL um fjárlög 2024

Hér að neðan er birt umsögn SL um fjárlög 2024, en einnig er hægt að nálgast umsögnina á vef Alþingis hér.

Sjálfstæðu leikhúsin óska eftir:

●...

Sjálfstæðar sviðslistir í Evrópu – Stofnun og afkoma vaxandi geira

Út er komin yfirgripsmikil rannsókn um sjálfstæðar sviðslistir í Evrópu Independent Performing Arts in Europe: Establishment and Survival of an Emerging Field. Bókin er...