Umsóknagerð
Hér eru ábendingar unnar upp úr punktum sem Ólöf Ingólfsdóttir tók saman fyrir SL og gott er að hafa huga við umsóknagerð. Neðst í færslunni er að finna sniðmát að framleiðsluáætlun auk gátlista (á ensku og íslensku) sem getur nýst við umsóknagerð, en er fyrst og fremst hugsað sem hjálplegt tól við framleiðslu. Athugið að skjalið er læst, svo nauðsynlegt er að velja File : Make A Copy til að geta sniðið skrána að eigin þörfum.
Að skrifa umsókn
Umsóknaskrif eru liður í þróunarferli listrænna verkefna. Notið umsóknaskrifin til að kynnast verkefninu betur, skilgreina það og byrja að sjá hvernig það gæti hugsanlega litið út.
Rammi verkefnis
Gerið skýra grein fyrir grundvallaratriðum verkefnisins:
*Hvað? – Form verksins og lengd
*Hver? – Höfundar og flytjendur
*Hvernig? – Vinnuaðferðir og -ferli
*Hvar? – Sýningarstaður
*Hvenær? – Tímarammi verkefnis
Kjarni – útfærsla
Hvað heitir verkið? Reynið að gefa skýra hugmynd um verkið í einni setningu. Setningin þarf að vera upplýsandi um verkið og best er ef hún vekur líka áhuga og forvitni þess sem les. Eins er gott að æfa sig að lýsa verkinu í 20 orðum, 50 orðum o.s.frv.
Lýsing
Hvers konar upplifun má áhorfandi búast við? Heimur verksins, skali, andrúmsloft, fagurfræði, tækni, nýnæmi. Mood-board getur gefið vísbendingar um fagurfræði og stíl verksins en er alls ekki nauðsynlegt.
Hugmynd, bakgrunnur, innistæða
Innri eldur listamannsins. Af hverju vill listamaðurinn gera þetta verk? Af hverju er þetta einmitt verkið sem þessi listamaður þarf að búa til núna? Getur verið persónuleg ástæða, samfélagsleg ástæða eða sambland af hvortu tveggja. Sköpun listamanns er samtal við samfélagið. Hvernig talar þetta verk inn í samtímann? Hér má gera betur grein fyrir hugmyndafræði verksins.
Fjárhagsáætlun
Fjárhagsáætlun er frábært tæki til að gera sér grein fyrir umfangi og framkvæmd verksins. Allar ákvarðanir eru þýddar yfir í kostnaðartölur. Hver eru laun á æfingatímabilinu = hvað eru margir á launum, hvað er æfingatíminn langur og hvernig er hann skipulagður. Gerið raunhæfa kostnaðaráætlun, þar sem borguð eru eðlileg laun og munið að dekka alla kostnaðarliði. Fjárhagsáætlunin í umsóknarforminu er orðin að nokkuð góðu skjali, þið þurfið að fylla inn í hana en getið samið áætlunina í öðru formi ef þið viljið og fært inn.
Það emá finna ágætar leiðbeiningar hjá rannís um hvernig fylla skal út umsókn hér: https://www.rannis.is/sjodir/menning-listir/styrkir-til-atvinnuleikhopa/umsoknir-og-eydublod/
Frágangur
Fáið einhvern sem þið treystið til að lesa yfir umsóknina. Er umsóknin skiljanleg öðrum? Farið vel yfir málfar og stafsetningu svo umsóknin sé ánægjuleg aflestrar.
Framleiðsluáætlun og gátlisti
Hér má sækja framleiðsluáætlun og gátlista sem kunna að vera hjálpleg tól við umsóknagerð. Skjalið er hugsað sem gagnlegt tól við skipulagningu og yfirsýn við framleiðslu og verkskiptingu. Athugið að nauðsynlegt er að velja File : Make A Copy til að eiga við skjalið, en þá er hægt að sníða það að eigin þörfum.
https://docs.google.com/spreadsheets/d/1F2tcxa3eXzN5pCTEmwSO2w0LBs0d4MepKefkEfJE5Qg/edit?usp=sharing
Skildu eftir svar