Umsóknagerð-Gagnlegir punktar


Posted on september 9th, by leikhopar1 in Frettir, Uncategorized. No Comments

0 Flares Filament.io 0 Flares ×
Endatafl í Tjarnarbíói, Leikhópurinn Svipir

Ólöf Ingólfsdóttir tók saman gagnlega punkta varðandi umsóknaskrif sem er vert að minna á nú þegar margir eru að vinna í umsóknum. Hér að neðan eru ábendingar unnar upp úr punktum hennar sem gott er að hafa huga við umsóknagerð.

Að skrifa umsókn

Umsóknaskrif eru liður í þróunarferli listrænna verkefna. Notið umsóknaskrifin til að kynnast verkefninu betur, skilgreina það og byrja að sjá hvernig það gæti hugsanlega litið út.

Rammi verkefnis

Gerið skýra grein fyrir grundvallaratriðum verkefnisins:
*Hvað? – Form verksins og lengd
*Hver? – Höfundar og flytjendur
*Hvernig? – Vinnuaðferðir og -ferli
*Hvar? – Sýningarstaður
*Hvenær? – Tímarammi verkefnis

Kjarni – útfærsla

Hvað heitir verkið? Reynið að gefa skýra hugmynd um verkið í einni setningu. Setningin þarf að vera upplýsandi um verkið og best er ef hún vekur líka áhuga og forvitni þess sem les. Eins er gott að æfa sig að lýsa verkinu í 20 orðum, 50 orðum o.s.frv.

Lýsing

Hvers konar upplifun má áhorfandi búast við? Heimur verksins, skali, andrúmsloft, fagurfræði, tækni, nýnæmi. Mood-board getur gefið vísbendingar um fagurfræði og stíl verksins en er alls ekki nauðsynlegt.

Hugmynd, bakgrunnur, innistæða

Innri eldur listamannsins. Af hverju vill listamaðurinn gera þetta verk? Af hverju er þetta einmitt verkið sem þessi listamaður þarf að búa til núna? Getur verið persónuleg ástæða, samfélagsleg ástæða eða sambland af hvortu tveggja. Sköpun listamanns er samtal við samfélagið. Hvernig talar þetta verk inn í samtímann? Hér má gera betur grein fyrir hugmyndafræði verksins.

Fjárhagsáætlun

Fjárhagsáætlun er frábært tæki til að gera sér grein fyrir umfangi og framkvæmd verksins. Allar ákvarðanir eru þýddar yfir í kostnaðartölur. Hver eru laun á æfingatímabilinu = hvað eru margir á launum, hvað er æfingatíminn langur og hvernig er hann skipulagður. Gerið raunhæfa kostnaðaráætlun, þar sem borguð eru eðlileg laun og munið að dekka alla kostnaðarliði. Fjárhagsáætlunin í umsóknarforminu er orðin að nokkuð góðu skjali, þið þurfið að fylla inn í hana en getið samið áætlunina í öðru formi ef þið viljið og fært inn.

Það emá finna ágætar leiðbeiningar hjá rannís um hvernig fylla skal út umsókn hér: https://www.rannis.is/sjodir/menning-listir/styrkir-til-atvinnuleikhopa/umsoknir-og-eydublod/

Frágangur

Fáið einhvern sem þið treystið til að lesa yfir umsóknina. Er umsóknin skiljanleg öðrum? Farið vel yfir málfar og stafsetningu svo umsóknin sé ánægjuleg aflestrar.





Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.



Fréttir

Fréttir og tilkynningar úr starfi sjálfstæðra sviðslistahópa. Sendið okkur póst á leikhopar@leikhopar.is

Listafólk í fókus – Taktu þátt

Ný netfundaröð EAPIA „Listafólk í fókus“ hefst fimmtudaginn 9. nóvember.

EAIPA – Evrópusamtök sjálfstæðs sviðslistafólks efnir til spennandi dagskrár og beinir sjónum sínum að listafólki, aðbúnaði þess og aðstöðu með...

Umsögn SL um fjárlög 2024

Hér að neðan er birt umsögn SL um fjárlög 2024, en einnig er hægt að nálgast umsögnina á vef Alþingis hér.

Sjálfstæðu leikhúsin óska eftir:

●...

Sjálfstæðar sviðslistir í Evrópu – Stofnun og afkoma vaxandi geira

Út er komin yfirgripsmikil rannsókn um sjálfstæðar sviðslistir í Evrópu Independent Performing Arts in Europe: Establishment and Survival of an Emerging Field. Bókin er...