Vorblót 2021 – Opið kall


Posted on febrúar 10th, by leikhopar1 in Frettir. No Comments

0 Flares Filament.io 0 Flares ×

Tjarnarbíó í samvinnu við Reykjavík Dance Festival heldur þriðju útgáfuna af sviðslistahátíðinni Vorblót dagana 15. Apríl – 18. Apríl.  

Við leitum bæði að tilbúnum verkum sem og verkum í vinnslu til að sýna á hátíðinni.  Verkin mega hafa breiða skírskotun í samtímadans eða verk unnin af danshöfundum eða dönsurum.

Leitast er eftir fjölbreyttum verkum bæði í umgjörð, aðferð og efnivið sem mega fara fram á sviði eða annarsstaðar þ.e. staðbundin verk (site-specific). Tjarnarbíó er “black box” leikhús og stærð á sviðsgólfi er uþb 9 m. á breidd x 11 m. á dýpt. Leikhúsið vel búið ljósum og hljóðbúnaði, en hafa skal í huga einfalda umgjörð fyrir sviðsverk þar sem æfingatími á sviði verður takmarkaður.

Gert er ráð fyrir að velja 2 -3 verk til sýninga.

Hátíðin greiðir ekki laun fyrir verkið en listamenn fá hagstæðan hlut af miðasölutekjum.  Tjarnarbíó og Reykjavík Dance Festival munu kynna verkin á sínum miðlum og sjá alfarið um markaðssetningu og skipulag hátíðarinnar.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 28. Febrúar.  Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkinu, myndir eða video ef þau eru til.  Umsóknum skal skilað á netfangið umsokn@tjarnarbio.is merkt í subject:  Vorblot2021 [nafn listamanns/hóps] [nafn verks]





Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.



Fréttir

Fréttir og tilkynningar úr starfi sjálfstæðra sviðslistahópa. Sendið okkur póst á leikhopar@leikhopar.is

Aðalfundur MTB

Aðalfundarboð Menningarfélagsins Tjarnarbíós

Dagskrá aðalfundar MTB

1.   Skýrsla stjórnar um liðið starfsár

2.   Reikningar félagsins – Uppgjör leikárs ’23-‘24

3.   Lagabreytingar – Sjá að neðan

4.   Kosning stjórnar...

Launatölur vegna umsókna í Sviðslistasjóð og listamannalaun 2024

Nokkuð er um spurningar þegar kemur að launatölum í umsóknum. Áhersla skal lögð á sanngjarna þóknun miðað við vinnuframlag og SL hefur lagt áherslu...

Listafólk í fókus – Taktu þátt

Ný netfundaröð EAPIA „Listafólk í fókus“ hefst fimmtudaginn 9. nóvember.

EAIPA – Evrópusamtök sjálfstæðs sviðslistafólks efnir til spennandi dagskrár og beinir sjónum sínum að listafólki, aðbúnaði þess og aðstöðu með...